2008-05-27 11:50:31 CEST

2008-05-27 11:51:31 CEST


Islandic English
Skipti hf. - Yfirtökutilboð

- Niðurstaða tilboðs til hluthafa Skipta: Exista með yfir 99% hlutafjár


Yfirtökutilboð Exista hf. (“Exista”) til hluthafa Skipta hf. (“Skipti”) sem tók
gildi 31. mars rann út kl. 16:00 í gær, mánudaginn 26. maí, eins og fram kom í
opinberu tilboðsyfirliti Exista frá 27. mars sl. 

Tilboðið var samþykkt af hluthöfum sem áttu alls 4.225.224.096 hluti í Skiptum
eða sem nemur 56,32% hlutafjár í félaginu.. 

Fyrir tilboðið fór Exista með 43,68% hlutafjár í Skiptum í gegnum dótturfélög
sín, Exista B.V., Vátryggingafélag Íslands hf. og Líftryggingafélag Íslands
hf., eða 42,90% þegar tekið hefur verið tillit til hlutafjárhækkunar Skipta 31.
mars sl. vegna frágangs á kaupum félagsins á Sensa ehf. og Anza hf. 

Exista hefur því tryggt sér 99,22% hlutafjár í Skiptum og mun fara með
samsvarandi atkvæðisrétt í félaginu þegar uppgjör á yfirtökutilboðinu hefur
farið fram. 

Hluthafar Skipta sem samþykktu tilboðið munu fá kaupverðið greitt eigi síðar en
2. júní 2008 í samræmi við skilmála tilboðsins. 

Exista mun óska eftir samþykki stjórnar Skipta við því að aðrir hluthafar
Skipta sæti innlausn á hlutum sínum í félaginu eins skjótt og auðið er.