2015-10-02 16:06:47 CEST

2015-10-02 16:07:49 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Skipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Leiðrétting - Síminn birtir lýsingu - Frétt birt 2015-09-28 11:13:20


Síminn hf. hefur birt lýsingu hlutabréfa í tengslum við almennt hlutafjárútboð
og umsókn um að öll útgefin hlutabréf í félaginu verði tekin til viðskipta á
Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. 

Leiðrétting:  Síminn hf. hefur birt viðauka við lýsingu hlutabréfa dagsetta 25.
september 2015. Þar er tilgreint nýtt ISIN númer hlutabréfa í Símanum hf. og
misritanir í lýsingu leiðréttar. Í eftirfarandi tilkynningu hefur ISIN númer
verið leiðrétt, tilgreint að viðauki er órjúfanlegur hluti lýsingar og lýsing
ásamt viðauka sett í viðhengi með frétt. 



Síminn hf. hefur birt lýsingu hlutabréfa í tengslum við almennt hlutafjárútboð
og umsókn um að öll útgefin hlutabréf í félaginu verði tekin til viðskipta á
Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. 

Heildarfjöldi útgefinna hluta í Símanum hf. er 9.650.000.000 og er hver hlutur
1 króna að nafnverði. Allir útgefnir hlutir í félaginu eru í sama flokki og
jafn réttháir. Félagið á 19 eigin hluti. Hlutir í félaginu eru gefnir út
rafrænt í kerfum Nasdaq verðbréfamiðstöð hf.  Auðkenni hlutanna hjá Nasdaq
verðbréfamiðstöð er SIMINN og er óskað eftir sama auðkenni í kerfum Nasdaq
Iceland. ISIN númer þeirra er IS0000026193. 

Arion banki býður 18-21% hlut til sölu með almennu útboði 5.-7. október.

Arion banki hf. hyggst selja 18% hlut í Símanum hf. með almennu útboði sem
fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. hefur umsjón með. Markmið útboðsins er annars
vegar að gera félaginu kleift að uppfylla skilyrði Nasdaq Iceland um dreifingu
hlutabréfa sem tekin eru til viðskipta á Aðalmarkaði en hins vegar horfir
seljandi til þess að selja eign sína á sem hagstæðustu verði. Stærð útboðsins
nemur 1.737.000.000 hlutum eða 18% hlut í félaginu og nemur söluandvirði þeirra
að lágmarki 4.689,9 milljónum króna. Seljandi áskilur sér rétt til að stækka
útboðið í allt að 2.026.500.000 hluti sem samsvara 21% eignarhlut í Símanum hf.
Á vef umsjónaraðila útboðsins, www.arionbanki.is, verður tekið við áskriftum
frá 5. október 2015 klukkan 10.00 til 7. október 2015 klukkan 16.00. Tvær
áskriftarleiðir eða tilboðsbækur verða í boði en ákvörðun um stærð tilboðsbóka
mun taka mið af eftirspurn í útboðinu, bæði hvað varðar verð og magn. 

Tilboðsbók A:  Hver áskrift að andvirði 100.000 kr. - 10.000.000 kr. Verðbil
2,7-3,1 kr./hlut. Eitt endanlegt verð, jafnt eða lægra en í B. 

Tilboðsbók B:  Áskrift að andvirði yfir 10 milljónum kr. Lágmarksverð 2,7
kr./hlut. Eitt endanlegt verð, jafnt eða hærra en í A. 

Meginregla við úthlutun verður að taka þeim áskriftum sem berast á hæsta gengi.
Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðs verði birtar opinberlega 8. október
2015. Útboðið er með fyrirvara um að hlutir í félaginu verði teknir til
viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Slíkt samþykki birtir Nasdaq Iceland
opinberlega ásamt tilkynningu um fyrsta mögulega viðskiptadag með að lágmarki
eins viðskiptadags fyrirvara. Eindagi kaupverðs er áætlaður 13. október 2015 og
geta viðskipti í fyrsta lagi hafist á Aðalmarkaði 15. október 2015. 

Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í
útboðinu er bindandi. 

Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um félagið og skilmála
útboðsins í lýsingu hlutabréfa og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti.
Aðstoð vegna úboðsins má nálgast hjá söluaðilum þess, fyrirtækjaráðgjöf og
markaðsviðskiptum fjárfestingabankasviðs Arion banka ásamt Arctica Finance, eða
hjá verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Arion banka í síma 444-7000 og
tölvupóstfangi siminnutbod@arionbanki.is. 

Nánari upplýsingar

Útgefandi lýsingar hlutabréfa er Síminn hf., kennitala 460207-0880, Ármúla 25,
108 Reykjavík. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu og
því ferli að fá hlutabréf félagsins tekin til viðskipta. Nánari upplýsingar um
félagið, hlutabréf þess og skilmála útboðsins má finna í lýsingu félagsins sem
dagsett er 25. september 2015 og birt er á vef félagsins,
siminn.is/siminn/fjarfestar, ásamt viðauka dagsettum 1. október 2015 sem
skoðast sem órjúfanlegur hluti af lýsingunni. Þar má nálgast lýsinguna næstu 12
mánuði. Lýsinguna má einnig nálgast á vef Arion banka, arion.is. Innbundin
eintök af lýsingu má nálgast frá 29. september 2015 hjá Símanum á skrifstofu
félagsins í Ármúla 25, Reykjavík og hjá Arion banka í Borgartúni 19, Reykjavík.