2011-04-08 11:08:18 CEST

2011-04-08 11:09:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Snæfellsbær - Ársreikningur

Ársuppgjör 2010


Fimmtudaginn 7. apríl 2011 var ársreikningur Snæfellsbæjar 2010 tekinn til
fyrri umræðu. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um
ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Síðari umræða um
ársreikningurinn verður fimmtudaginn 5. maí n.k. 

Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók
gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert
ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við
ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu
leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar
á grundvelli þeirra. Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum
reikningsskilaaðferðum. 

Ársreikningur Snæfellsbæjar fyrir árið 2010 byggir á sömu
reikningsskila­aðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur. 

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu um 1.559,3 millj. króna samkvæmt
samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir rekstrartekjum um 1.329,5 millj. króna. Rekstrartekjur A- hluta námu um
1.204,0 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um
1.046,0 millj. króna. 

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A-
og B-hluta var rekstrarafgangur að fjárhæð um 127,3 millj. króna en samkvæmt
fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir tapi upp á 112,7 millj. króna. Afkoman varð
því töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða sem nemur 240,0 millj. króna.
Rekstrarniðurstaða A-hluta var rekstrarafgangur að fjárhæð 73,7 millj. króna en
fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir tapi upp á um 109,0 millj. króna. Afkoman varð
því betri sem nemur 182,7 millj. króna. Ástæða þessa er að mestu leyti hærri
skatttekjur og lægri fjármagnsgjöld en áætlun ársins 2010 gerði ráð fyrir, enda
þótti rétt að hafa allar tekjuáætlanir varfærnar ásamt því að gert var ráð
fyrir hærri verðbólgu á árinu en raunin varð. 

Veltufé frá rekstri var 250,5 millj. króna og veltufjárhlutfall er 1,4.
Handbært frá rekstri var 249,8 milljónir. 

Heildareignir bæjarsjóðs námu um 2.750,4 millj. króna og heildareignir
sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi um 3.531,1 millj. króna í árslok
2010. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.378,0 millj. króna og í samanteknum
ársreikningi um 1.815,9 millj. króna, og lækkuðu þar með milli ára um 78,6
milljónir. 

Fjárfestingarhreyfingar voru 208,9 milljónir og fjármögnunarhreyfingar 112,6
milljónir. Snæfellsbær fjárfesti á árinu fyrir 213,9 milljónir í varanlegum
rekstrarfjármunum og tók ný lán upp á 80,0 millj. króna en greiddi niður lán að
fjárhæð 192,6 milljónir. 

Álagningarhlutfall útsvars var 13,28 %. Álagningahlutfall fasteignaskatts nam
0,44% á íbúðarhúsnæði og álagningarhlutfall á aðrar fasteignir nam 1,55%. 

Hægt verður að nálgast ásreikninginn á bæjarskrifstofunni Snæfellsási 2,
Hellissandi, sími 433-6900. Einnig á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is.