|
|||
2013-01-16 18:00:01 CET 2013-01-16 18:00:03 CET REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Reginn hf. - FyrirtækjafréttirKaup Regins hf. á fasteigninni við Ofanleiti 2 - Beiðni um skuldaraskiptiVísað er í tilkynningu Regins hf. þann 20. desember 2012 um samþykki kauptilboðs með fyrirvara. Kaupandi fasteignarinnar , Reginn A1 ehf., er dótturfélag Regins atvinnuhúsnæðis ehf. sem er í eigu Regins hf. Kaupandinn hefur ákveðið að óska eftir yfirtöku á áhvílandi láni sem hvílir á fasteigninni. Lánveitandi er OFAN SVÍV fagfjárfestasjóður, sjóður sem er í vörslu Stefnis hf. Þetta er eini fyrirvarinn sem út af stendur vegna kaupanna. Gert er ráð fyrir að sá tímarammi sem nefndur var í tilkynningu Regins frá 20. desember 2012 um undirritun kaupsamnings í janúar 2012 gangi eftir. Ef skuldaraskiptin verða ekki samþykkt þá er ljóst að ekki muni verða af kaupunum. Vísað er í tilkynningu frá Fagfjárfestasjóðnum OFAN SVÍV sem birt var 28. desember s.l. um skilmála skuldabréfaflokksins auk tilkynningar frá Stefni hf. frá 16. janúar um sama mál. Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson Forstjóri Regins hf. S: 5128900 / 8996262 |
|||
|