|
|||
2013-11-30 18:15:38 CET 2013-11-30 18:16:12 CET REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirYfirlýsing vegna árásar á vef VodafoneBrotist inn á vef Vodafone aðfararnótt 30. nóvember sl. Búið er að stöðva árásina og unnið er að nánari rannsókn á málinu. Um lögbrot er að ræða sem hefur verið kært til lögreglu. Árásin hafði engin áhrif á fjarskiptakerfi Vodafone heldur einskorðaðist við vef Vodafone. Í árásinni var upplýsingunum um SMS sem send voru í gegnum vefsíðu Vodafone stolið ásamt lykilorðum að Mínum síðum á Vodafone.is. Ekki var um að ræða hefðbundin SMS milli símtækja. Engum gögnum úr fjarskiptakerfum fyrirtækisins, svo sem upplýsingum um símtöl, SMS milli símtækja, tölvupósti eða öðrum fjarskiptagögnum var stolið. Vodafone mun í framhaldinu endurskoða öll öryggiskerfi fyrirtækisins til að koma í veg fyrir frekari árásir. [HUG#1746877] |
|||
|