2010-12-08 15:45:12 CET

2010-12-08 15:46:10 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824


Útboð á óverðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKB 12 0824 fór fram hjá Lánamálum
ríkisins kl. 
14:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama
verði. Lægsta 
samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 12 0824:
Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 8.197 m.kr. að nafnverði. 5
tilboðum var tekið fyrir 5.234 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 103,1 (2,37%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á 
söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 fimmtudaginn 9. desember. Hver
aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í
hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er
10. desember 2010. 

Þar sem markmiðum í útgáfumálum ríkissjóðs er náð verður hætt við útboð
ríkisbréfa sem 
fyrirhugað var að halda þann 17. desember.