2013-10-25 14:16:30 CEST

2013-10-25 14:17:31 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Hluthafafundir

Tilkynning um dagsetningu aðalfundar Tryggingamiðstöðvarinnar hf. árið 2014


Samkvæmt félagssamþykktum Tryggingamiðstöðvarinnar hf. skal stjórn félagsins
fyrir lok október ár hvert ákveða dagsetningu aðalfundar félagsins á komandi
ári ásamt því að tilgreina þann frest sem hluthafar hafa til þess að gera kröfu
um það til stjórnar að fá tiltekið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum. 

Stjórn félagsins hefur ákveðið að aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. árið
2014 skuli fara fram fimmtudaginn 20. mars 2014. 

Óski hluthafi, að fá tiltekið mál tekið til meðferðar á aðalfundi skal hann
hafa gert félagsstjórn grein fyrir því skriflega eða með rafrænum hætti  á
stjorn@tm.is fyrir fimmtudaginn 20. febrúar 2014. Kröfunni skal fylgja
rökstuðningur eða drög að ályktun til félagsstjórnar.