|
|||
2023-02-02 17:15:00 CET 2023-02-02 17:15:00 CET REGULATED INFORMATION Kvika banki hf. - InnherjaupplýsingarKvika banki hf.: Kvika banki hf. óskar eftir samrunaviðræðum við Íslandsbanka hf.Í dag ákvað stjórn Kviku banka að óska eftir því við stjórn Íslandsbanka að hefja samrunaviðræður milli félaganna. Stjórn Kviku telur að samruni félaganna skapi fjárhagslega sterkt fjármálafyrirtæki með dreifðan tekjugrunn. Í sameinuðu félagi væri mögulegt að veita viðskiptavinum aukna þjónustu og leiða til meiri samkeppni á fjármálamarkaði, meðal annars með fjártæknilausnum, auk þess sem sameinað félag yrði áhugaverður fjárfestingakostur. Ekki þykir ástæða að ákveða á þessari stundu hvor bankanna yrði yfirtökufélagið eða hvort og að hvaða marki dótturfélög bankanna myndu sameinast en það færi eftir heildarmati á viðskiptalegum, skattalegum og samkeppnislegum sjónarmiðum sem myndi eiga sér stað ef formlegar viðræður hefjast. Stjórn Kviku væntir þess að fá afstöðu frá stjórn Íslandsbanka á næstu dögum. Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi er tilkynning á innherjaupplýsingum í samræmi við 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), sem var veitt lagagildi hérlendis með lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. |
|||
|