|
|||
2024-09-17 13:48:18 CEST 2024-09-17 13:48:18 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum fimmtudaginn 19. september kl. 15:00. Boðinn verður til sölu verðtryggði flokkurinn LBANK CBI 30. Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur verðtryggða flokksins LBANK CBI 24 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfanna er fyrirframákveðið og er 99,860. Áætlaður uppgjörsdagur er 26. september 2024. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P. Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is. |
|||
|