|
|||
![]() |
|||
2015-07-13 10:00:00 CEST 2015-07-13 10:00:23 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Reglubundin tilkynning um kaup Fjarskipta á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 28 keyptu Fjarskipti hf. 370.495 eigin hluti að kaupverði 14.459.305 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) --------------------------------------------------------------------- 8.7.2015 10:43 80.000 39,00 3.120.000 8.7.2015 14:44 90.495 39,00 3.529.305 9.7.2015 14:34 100.000 39,05 3.905.000 10.7.2015 09:54 100.000 39,05 3.905.000 --------------------------------------------------------------------- Samtals 370.495 14.459.305 Fjarskipti áttu 339.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 709.495 eigin hluti eða sem nemur 0,21% af útgefnum hlutum í félaginu. Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Fjarskipta sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. júlí 2015. Þetta eru fyrstu kaup Fjarskipta samkvæmt endurkaupaáætluninni en endurkaupin munu nema að hámarki 10.300.000 hlutum eða sem nemur 3,06% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 400.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 31. desember 2015 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga." Nánari upplýsingar veitir: Bára Mjöll Þórðardóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is. [HUG#1936947] |
|||
|