|
|||
![]() |
|||
2015-12-11 09:41:17 CET 2015-12-11 09:41:17 CET REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirLandsvirkjun semur um lán frá Japan vegna ÞeistareykjavirkjunarLandsvirkjun hefur undirritað lánasamning, svokallaða verktakafjármögnun, vegna verksamnings um tvær 45 MW vélasamstæður frá Fuji Electric fyrir Þeistareykjavirkjun sem á að hefja vinnslu árið 2017. Japanska lánastofnunin Japan Bank for International Cooperation (JBIC) veitir lán að fjárhæð allt að 34 milljónir Bandaríkjadala á föstum vöxtum. Þá munu Citibank Japan Ltd. (í forstöðuhlutverki), Bank of Yokohama og Commerzbank AG, Tokyo Branch einnig veita lán að fjárhæð allt að 34 milljónir Bandaríkjadala á fljótandi vöxtum með ábyrgð frá Nippon Export and Investment Insurance (NEXI) og nemur heildarlánsfjárhæð því allt að 68 milljónum Bandaríkjadala. Lánið er til 20 ára og er veitt án ríkisábyrgðar. Þetta er í fyrsta sinn sem umræddar lánastofnanir veita slíkt lán til hátekju OECD ríkis vegna verkefnis sem tengt er endurnýjanlegri orku. Takanawa Japan KK og Citigroup voru ráðgjafar Landsvirkjunar við fjármögnunina. Hörður Arnarson, forstjóri: „Þetta er tímamótasamningur fyrir Ísland og Japan þar sem þetta er í fyrsta sinn sem Ísland fær fjármögnun með þessum hætti frá Japan. Við erum virkilega ánægð með þann stuðning sem japanskar lánastofnanir veita til fjármögnunar Þeistareykjavirkjunar.“ Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjárm |
|||
|