2011-09-09 13:47:30 CEST

2011-09-09 13:48:30 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa)
ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 13 0517:

Alls bárust 4 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.050 m.kr. að nafnverði. 3
tilboðum var tekið fyrir 1.950 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 105,500 (3,78%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 16 1013:

Alls bárust 7 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.200 m.kr. að nafnverði. 2
tilboðum var tekið fyrir 2.500 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 103,550 (5,18%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 13.
september. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 14. septmeber 2011. 

Ákveðið hefur verið að hætta við útboð ríkisbréfa sem fyrirhugað var að halda
þann 23. september í ljósi þess að helstu markmiðum í útgáfumálum á þriðja
ársfjórðungi hefur verið náð.