|
|||
2008-12-22 09:38:45 CET 2008-12-22 09:39:46 CET REGULATED INFORMATION Kópavogsbær - Ársreikningur- Bæjarstjórn Kópavogs afgreiðir fjárhagsáætlun með 200 m.kr. rekstrarafgangiBæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt fjárhagsætlun fyrir bæjarsjóð árið 2009 með 200 milljóna króna rekstarafgangi. Allir bæjarfulltrúar í bæjarstjórn Kópavogs undirrituðu eftirfarandi bókun á bæjarstjórnarfundi nú undir kvöld. „Helstu atriði varðandi fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2009: 1. Vinna við fjárhagsáætlun var unnin af fulltrúum allra flokka í bæjarstjórn Kópavogs og standa þeir saman að henni. 2. Ítrasta sparnaði og aðhaldi var beitt til að ná rekstri bæjarsjóðs hallalausum. 3. Grunnþjónusta á vegum bæjarfélagsins verður ekki skert. 4. Miðað við gefnar forsendur um tekjur verður rekstrarafgangur bæjarsjóðs um 200 milljónir króna eða ríflega 1%. 5. Laun nefndarfólks verða lækkuð um 10% ásamt því að fundum nefnda verður fækkað. 6. Laun yfirstjórnar Kópavogsbæjar verður lækkuð í samræmi við úrskurð kjararáðs varðandi þingfararkaup og laun æðstu starfsmanna ríkisins. 7. Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar er hækkuð um 17,1% á milli ára og upphæð til fjárhagsaðstoðar hækkar úr 110 milljónir króna í 187 milljónir króna. 8. Húsaleigubætur verða hækkaðar úr 100 milljónir króna 2008 í 167 milljónir króna. 9. Útsvar fyrir árið 2009 verður 13,28%. 10. Áætlað er að framkvæma fyrir ríflega 1.500 milljónir króna á árinu 2009. Helstu málaflokkar eru eftirfarandi: a.Grunn- og leikskóli 490 milljónir króna b.Íþróttamannvirki 471 milljónir króna c.Þjónustumiðstöð og hjúkrunarrými fyrir aldraða 350 milljónir króna d.Stígar, gróður, opin svæði o.fl. 150 milljónir króna 11. Stærstu rekstrarliðir í fjárhagsáætluninni eru (sem hlutfall af skatttekjum): a.Fræðslumál 61% b.Æskulýðs- og íþróttamál 11% c.Félagsþjónusta 7% d.Umferðar og samgöngumál 5% 12. Fjárhagsáætlun verður endurskoðuð eftir þrjá mánuði.“ Í fjárhagsáætluninni er enn fremur gert ráð fyrir sérstöku 100 milljóna króna framlagi til atvinnuskapandi verkefna vegna samdráttar á vinnumarkaði. |
|||
|