2017-05-09 19:07:15 CEST

2017-05-09 19:07:15 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Lækkun hlutafjár í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.


Skráð hefur verið í fyrirtækjaskrá hlutafjárlækkun í Sjóvá-Almennum tryggingum
hf. að nafnverði kr. 72.190.770, en á aðalfundi félagsins þann 17. mars sl. var
samþykkt tillaga stjórnar um að lækka hlutafé félagsins um sem nam eigin hlutum
félagsins þann 17. febrúar 2017 og þeim þannig eytt. Lagaskilyrðum fyrir lækkun
hlutafjárins hefur nú verið fullnægt og lækkunin því verið framkvæmd. 

Skráð hlutafé Sjóvá-Almennra trygginga hf. eftir lækkunina er að nafnvirði kr.
1.490.245.997, en var fyrir lækkunina kr. 1.562.436.767 að nafnverði. Hver
hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu
réttinda. Niðurfærslan hefur ekki áhrif á hlutafé í eigu annarra hluthafa en
félagsins sjálfs.