|
|||
![]() |
|||
2016-04-27 11:45:47 CEST 2016-04-27 11:45:47 CEST Tryggingamiðstöðin hf. - FjárhagsdagatalTryggingamiðstöðin hf.: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2016 birt þann 4. maí – kynningarfundur kl. 15:45.TM mun birta árshlutauppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2016 fyrir opnun markaða miðvikudaginn 4. maí næst komandi. TM býður til kynningarfundar á afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi kl. 15:45 sama dag. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að Síðumúla 24. 4. hæð. Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins www.tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar. Hægt er að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni: https://global.gotomeeting.com/join/600820501 |
|||
|