|
|||
![]() |
|||
2015-05-28 19:20:19 CEST 2015-05-28 19:20:53 CEST REGULATED INFORMATION Eik fasteignafélag hf. - ÁrsreikningurEik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu þrjá mánuði 2015- Rekstrartekjur tímabilsins námu 1.429 m.kr. - Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 993 m.kr. - Heildarhagnaður tímabilsins nam 879 m.kr. - Handbært fé frá rekstri nam 787 m.kr. á tímabilinu. - Bókfært virði fjárfestingareigna nam 62.852 m.kr. í lok tímabilsins. - Matsbreyting fjárfestingareigna nam 598 m.kr. á tímabilinu. - Vaxtaberandi skuldir námu 41.536 m.kr. í lok tímabilsins. - Eiginfjárhlutfall nam 31%. - Hagnaður á hlut var 0,25 kr. Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2015 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 28. maí 2015. Árshlutareikningurinn hefur ekki verið kannaður eða endurskoðaður af endurskoðendum félagsins. Á árinu 2014 nánast þrefaldaðist félagið að stærð með kaupum á EF1 hf. og Landfestum ehf. Þar sem rekstur EF1 hf. og Landfesta ehf. var ekki kominn að fullu inn í rekstur samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi 2014 er samanburður við það tímabil nokkuð ómarktækur. EF1 og Landfestar komu að fullu inn í rekstur samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi 2014. Rekstur félagsins Rekstur Eikar fasteignafélags hf. á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015 gekk vel og í takti við áætlanir stjórnenda félagsins. Uppgjörið er nokkuð litað af háum einskiptiskostnaði á tímabilinu vegna skráningar félagsins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf. en félagið var skráð í kauphöllina í lok apríl 2015. Rekstrartekjur félagsins á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015 námu 1.429 m.kr., þar af voru leigutekjur 1.338 m.kr. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 993 m.kr. NOI hlutfall, þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, afskriftir og einskiptisliði sem hlutfall af leigutekjum, nam 75,6% samanborið við 77,5% árið 2014. Einskiptiskostnaður vegna skráningar hlutafjár félagsins á markað nam 18 m.kr. á tímabilinu. Að auki mun töluverður einskiptiskostnaður falla til á öðrum ársfjórðungi vegna framangreindrar skráningar. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 1.099 m.kr. og hagnaður tímabilsins nam 879 m.kr. Fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og stuðst er við núvirt framtíðarsjóðsteymi einstakra eigna. Breytingar á gangvirði eru færðar undir matsbreytingu fjárfestingareigna sem nam á tímabilinu 598 m.kr. Efnahagur félagsins Heildareignir félagsins námu 65.520 m.kr. þann 31. mars 2015, þarf af námu fjárfestingareignir 62.852 m.kr. Eigið fé félagsins nam 20.368 m.kr. í lok fyrsta ársfjórðungs og var eiginfjárhlutfall 31%. Heildarskuldir félagsins námu 45.153 m.kr. þann 31. mars 2015, þar af voru vaxtaberandi skuldir 41.536 m.kr. og tekjuskattsskuldbinding 2.776 m.kr. Virðisútleiguhlutfall samstæðu Eikar í lok mars 2015 var 91,6% sem er óbreytt frá lok árs 2014. Ef tekið er tillit til eigna í þróun þá var virðisútleiguhlutfallið 92,6% í lok mars 2015 samanborið við 93,0% í lok árs 2014. Eignasafn félagsins Eik fasteignafélag hf. sinnir rekstri og útleigu á atvinnuhúsnæði. Fjöldi eigna félagsins er yfir 100 og telja þær samtals yfir 273 þúsund fermetra. Virði fjárfestingareigna félagsins er um 63 ma.kr. og heildarfjöldi leigutaka er yfir 400. Helstu eignir félagsins eru Borgartún 21 og 26, Nýi Glæsibær, Turninn í Kópavogi, Smáratorg og Austurstræti 5,6,7 og 17. Stærstu leigutakar eru Fasteignir ríkissjóðs, Húsasmiðjan, Landsbankinn, Rúmfatalagerinn, Skipti, Deloitte og VÍS. Stærsti hluti fasteignasafns Eikar eru skrifstofuhúsnæði eða 48%. Næst koma verslunarhúsnæði 31%, lagerhúsnæði 9%, veitingahúsnæði 4% og hótel 3%. Um 88% fasteigna félagsins eru á höfuðborgarsvæðinu, þar af 39% á fjármála- og viðskiptasvæði Reykjavíkur (aðallega innan póstnúmera 105 og 108) og 13% í miðbæ Reykjavíkur. 12% eignasafnsins er á landsbyggðinni, þar af 10% á Akureyri. Kynningarfundur Opinn kynningarfundur verður haldinn mánudaginn 1. júní 2015 klukkan 08:30 á 20. hæð í Turninum, Smáratorgi 3, Kópavogi. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2015 og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Kolbeini Friðrikssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs. Fjárhagsdagatal 2015 Árshlutauppgjör 2. ársfjórðungs 2015 31. ágúst 2015 Árshlutauppgjör 3. ársfjórðungs 2015 26. nóvember 2015 Ársuppgjör 2015 29. febrúar 2016 Nánari upplýsingar veita: Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200 / 861-3027 Kolbeinn Friðriksson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kolbeinn@eik.is, s. 590-2209 / 781-2111. [HUG#1924752] |
|||
|