|
|||
2008-10-10 12:46:18 CEST 2008-10-10 12:47:17 CEST REGULATED INFORMATION Exista hf. - FyrirtækjafréttirSala á hlut í Bakkavör GroupStjórn Exista hefur ákveðið að selja allan hlut félagins í Bakkavör Group hf, samtals 855.151.478 hluti eða sem nemur 39,629% af heildarhlutafé, til ELL 182 ehf. Söluverð er 9,79 krónur á hlut sem er síðasta dagslokagengi í Bakkavör Group 8. október. Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um samþykki lánveitenda. Eftir viðskiptin á hvorki Exista né dótturfélög þess hluti í Bakkavör Group. Eigendur ELL 182 ehf. eru stofnendur og aðalstjórnendur Bakkavör Group, Lýður Guðmundsson og Ágúst Guðmundsson. Með sölunni er stuðlað að því að tryggja stöðugleika í framtíðarrekstri og eignarhaldi félagsins. |
|||
|