2015-08-31 10:47:27 CEST

2015-08-31 10:48:09 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Ársreikningur

Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu sex mánuði 2015


-      Rekstrartekjur tímabilsins námu 2.883 m.kr.

-      Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 1.971 m.kr.

-      Heildarhagnaður tímabilsins nam 1.522 m.kr.

-      Handbært fé frá rekstri nam 944 m.kr. á tímabilinu.

-      Bókfært virði fjárfestingareigna nam 63.851 m.kr. í lok tímabilsins.

-      Matsbreyting  fjárfestingareigna nam 1.455 m.kr. á tímabilinu.

-      Vaxtaberandi skuldir námu 41.848 m.kr. í lok tímabilsins.

-      Eiginfjárhlutfall nam 31%.

-      Hagnaður á hlut var 0,44 kr.



Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30.
júní 2015 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 31. ágúst 2015.
Árshlutareikningurinn var kannaður af endurskoðanda félagsins.

Rekstur félagsins

Traustur og stöðugur rekstur einkennir uppgjör Eikar fasteignafélags hf. fyrir
fyrstu sex mánuði ársins 2015 og er uppgjör félagsins í takti við áætlanir
stjórnenda félagsins. Litlar breytingar urðu á eignasafni félagsins á
tímabilinu, en stórt skref var stigið á öðrum ársfjórðungi 2015 þegar félagið
var skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf. í lok apríl. Uppgjör tímabilsins
einkennist því nokkuð af háum einskiptiskostnaði í tengslum við skráninguna, en
án einskiptisliða líta uppgjörstölur og rekstrarkennitölur félagsins vel út.

Rekstrartekjur félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins 2015 námu 2.883 m.kr., þar
af voru leigutekjur 2.719 m.kr. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og
afskriftir nam 1.971 m.kr. Einskiptiskostnaður vegna skráningar hlutafjár
félagsins á markað nam 88 m.kr. á tímabilinu. Vel heppnuðu skráningarferli
félagsins lauk með skráningu hlutafjár þess í Kauphöll í lok apríl 2015 og er
einskiptiskostnaður félagsins vegna skráningarinnar því að langmestu leyti
kominn fram í uppgjöri félagsins á fyrri árshelmingi 2015. Hagnaður fyrir
tekjuskatt nam 1.906 m.kr. og hagnaður tímabilsins nam 1.522 m.kr.

NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, afskriftir og
einskiptisliði sem hlutfall af leigutekjum) nam 75,7% á fyrri árshelmingi ársins
2015 og 75,9% á öðrum ársfjórðungi 2015, samanborið við 77,5% árið 2014. Arðsemi
fjárfestingareigna (yield, þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, afskriftir
og einskiptisliði sem hlutfall af meðalvirði fjárfestingareigna á tímabilinu)
nam 6,5% á fyrri árshelmingi 2014 og 6,6% á öðrum ársfjórðungi 2015.

Fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS) og stuðst er við núvirt framtíðarsjóðstreymi
einstakra eigna. Breytingar á gangvirði eru færðar undir matsbreytingu
fjárfestingareigna sem nam á tímabilinu 1.455 m.kr.

Á árinu 2014 nánast þrefaldaðist félagið að stærð með kaupum á EF1 hf. og
Landfestum ehf. Þar sem rekstur EF1 hf. og Landfesta ehf. var ekki kominn að
fullu inn í rekstur samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi 2014 er samanburður við
það tímabil nokkuð ómarktækur. EF1 og Landfestar komu að fullu inn í rekstur
samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi 2014.

Efnahagur félagsins

Heildareignir félagsins námu 65.827 m.kr. þann 30. júní 2015, þar af námu
fjárfestingareignir 63.851 m.kr. Eigið fé félagsins nam 20.431 m.kr. í lok júní
2015 og var eiginfjárhlutfall 31%. Heildarskuldir félagsins námu 45.395 m.kr.
þann 30. júní 2015, þar af voru vaxtaberandi skuldir 41.848 m.kr. og
tekjuskattsskuldbinding 2.940 m.kr.

Virðisútleiguhlutfall samstæðu Eikar í lok júní 2015 var 91,8% og hafði hækkað
um 0,2% frá lok fyrra tímabils. Ef tekið er tillit til eigna í þróun þá var
virðisútleiguhlutfallið óbreytt, eða 92,6% í lok júní 2015.

Eignasafn félagsins

Eik fasteignafélag hf. sinnir rekstri og útleigu á atvinnuhúsnæði. Fjöldi eigna
félagsins er yfir 100 og telja þær samtals yfir 273 þúsund fermetra. Virði
fjárfestingareigna félagsins er um 64 ma.kr. og heildarfjöldi leigutaka er yfir
400. Helstu eignir félagsins eru Borgartún 21 og 26, Nýi Glæsibær, Turninn í
Kópavogi, Smáratorg og Austurstræti 5,6,7 og 17. Stærstu leigutakar eru
Fasteignir ríkissjóðs, Húsasmiðjan, Landsbankinn, Rúmfatalagerinn, Skipti,
Deloitte og VÍS.

Stærsti hluti fasteignasafns Eikar eru skrifstofuhúsnæði eða 48%. Næst koma
verslunarhúsnæði 31%, lagerhúsnæði 9%, veitingahúsnæði 4% og hótel 3%. Um 88%
fasteigna félagsins eru á höfuðborgarsvæðinu, þar af 39% á fjármála- og
viðskiptasvæði Reykjavíkur (aðallega innan póstnúmera 105 og 108) og 13% í miðbæ
Reykjavíkur. 12% eignasafnsins er á landsbyggðinni, þar af 10% á Akureyri.

Kynningarfundur

Opinn kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 1. september 2015 klukkan
08:30 á 20. hæð í Turninum, Smáratorgi 3, Kópavogi. Garðar Hannes Friðjónsson,
forstjóri Eikar, mun kynna uppgjör fyrstu sex mánuði 2015 og svara spurningum að
lokinni kynningu ásamt Kolbeini Friðrikssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.



Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200 / 861-3027

Kolbeinn Friðriksson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kolbeinn@eik.is, s.
590-2209 / 781-2111.


[HUG#1948587]