2013-02-26 23:58:37 CET

2013-02-26 23:59:39 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Óbreytt lánshæfiseinkunn Moody‘s


Reykjavík, 2013-02-26 23:58 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Matsfyrirtækið Moody‘s
hefur gefið út lánshæfiseinkunn fyrir Orkuveitu Reykjavíkur. Einkunnin er
óbreytt frá fyrra mati, eða B1 með neikvæðum horfum. 
Í viðhengdri tilkynningu segir að til þess að horfur verði metnar stöðugar
þurfi fyrirtækið að verja sig frekar fyrir ytri sveiflum í álverði, vöxtum eða
gengi og sérstaklega er tiltekið að nái eignarsöluáform Orkuveitunnar áætlun,
sé það til þess fallið að bæta horfur í rekstrinum. 
Matið, sem er á ensku, er í viðhengi.
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt, með fyrirvara um staðfestingu
eigenda, kauptilboð í höfuðstöðvar fyrirtækisins að fjárhæð 5,1 milljarður
króna. Sú samþykkt er í ferli hjá eigendum, sbr. tilkynningu til Kauphallar 25.
janúar sl. Þá hefur stjórn samþykkt að selja Reykjavíkurborg Perluna á
Öskjuhlíð á 950 milljónir króna. Kaup Reykjavíkurborgar voru háð því að
samningar tækjust við mennta- og menningarmálaráðuneytið um rekstur
náttúruminjasafns í húsnæðinu. Þeim samningum mun ekki vera lokið.