2009-08-20 21:19:46 CEST

2009-08-20 21:21:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Árshlutareikningur - 6 mán.

Árshlutareikningur Orkuveitu Reykjavíkur tímabilið 1.1. til 30.6. 2009



Rekstrarhagnaður Orkuveitu Reykjavíkur fyrir fjármagnsliði, skatta og
afskriftir, EBITDA, fyrstu sex mánuði ársins 2009 var 5,7  milljarðar
króna. Að teknu tilliti  til þeirra þátta  nemur halli af  rekstrinum
10,6 milljörðum króna og ræðst það  að mestu af 7% veikingu  íslensku
krónunnar frá áramótum. Á  sama tímabili 2008  varð halli að  fjárhæð
16,4 milljarðar króna af rekstrinum.
Vaxandi tekjur  fyrirtækisins  í erlendri  mynt  gera því  kleift  að
standa undir  greiðslum  af  erlendum  lántökum  þrátt  fyrir  miklar
gengissveiflur.
Árshlutareikningurinn   er   gerður   í   samræmi   við    alþjóðlega
reikningsskilastaðla.
Helstu niðurstöður tímabilsins 1.1. til 30.6. 2009

Rekstur Orkuveitu  Reykjavíkur var  með 10.615  milljóna króna  halla
fyrstu sex mánuði  ársins 2009 samanborið  við 16.406 milljóna  króna
halla fyrir sama tímabil árið áður.

Rekstrartekjur tímabilsins námu 11.925 milljónum króna en voru 11.369
milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður.

Hagnaður fyrirtækisins  fyrir  fjármagnsliði, skatta  og  afskriftir,
EBITDA, var  5.692 milljónir  króna  samanborið við  5.816  milljónir
króna á sama tímabili árið áður.

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 14.132 milljónir króna á tímabilinu,
en voru  neikvæðir um  22.187 milljónir  króna á  sama tímabili  árið
2008.

Heildareignir þann 30. júní 2009 voru 264.438 milljónir króna en voru
259.373 milljónir króna 31. desember 2008.

Eigið fé þann 30. júní 2009 var 37.344 milljónir króna en var  48.359
milljónir króna 31. desember 2008.

Heildarskuldir  fyrirtækisins  þann  30.   júní  2009  voru   227.094
milljónir króna samanborið við 211.015 milljónir króna í árslok 2008.

Eiginfjárhlutfall var 14,1% þann 30. júní 2009 en var 18,6% í  árslok
2008.

Ýmis mál
Alþingi  samþykkti  á  vorþingi  2008  breytingar  á  ýmsum  lögum  á
orkusviði með  gildistöku  1.  júlí  2009.  Gildistökunni  var  síðan
frestað til 1. janúar 2010. Þessar breytingar fela það meðal annars í
sér að skipta  þarf fyrirtækinu upp  þannig að sérleyfisstarfsemi  og
samkeppnisstarfsemi séu  reknar í  aðskildum fyrirtækjum.  Hafinn  er
undirbúningur að þessari skiptingu.

Horfur
Þrátt fyrir umrót á íslenskum og erlendum fjármálamörkuðum er rekstur
Orkuveitu  Reykjavíkur    traustur.  Áfram   er  unnið   að   stækkun
Hellisheiðarvirkjunar á  árinu 2009  og er  áformað að  taka  síðasta
áfanga raforkuframleiðslu hennar í notkun á fyrsta ársfjórðungi 2011.
Uppbygging annarra virkjana mun taka mið af aðgengi fyrirtækisins  að
lánsfé til fjárfestinga og þeim lánskjörum sem í boði verða.

Vegna óvissu í íslensku efnahagslífi hefur þó dregið úr fjárfestingum
í fjárhagsáætlun Orkuveitu Reykjavíkur á  árinu 2009 og gripið  hefur
verið til víðtækra aðhaldsaðgerða  í rekstri fyrirtækisins bæði  hvað
varðar launagreiðslur og annan rekstrarkostnað.

Eiginfjárstaða Orkuveitu Reykjavíkur mun  á næstu misserum ráðast  að
miklu  leyti   af   stöðu  íslensku   krónunnar   gagnvart   erlendum
gjaldmiðlum.

Nánari upplýsingar veitir Hjörleifur  B. Kvaran, forstjóri  Orkuveitu
Reykjavíkur, í síma 516-6000.



Orkuveita Reykjavíkur - árshlutauppgjör

Allar tölur eru í milljónum kr.                             1. og 2.    1. og 2.
                                        1 ársfj. 2 ársfj.     ársfj.      ársfj.
                                            2009     2009       2009        2008
Rekstrarreikningur                      1.1-31.3 1.4-30.6   1.1-30.6    1.1-30.6

Rekstrartekjur
...........................                6.541    5.383     11.925      11.369
Rekstrargjöld
.............................            (3.206)  (3.027)    (6.233)     (5.553)
      Rekstrarhagn. f. afskr. (EBITDA)     3.335    2.357      5.692       5.816
Afskriftir
....................................     (2.374)  (2.327)    (4.702)     (3.308)
Fjármunatekjur og (fjármagnsgj)              703 (14.835)   (14.132)    (22.187)
Áhrif hlutdeildarfélaga
.................                             19       13         33          14
           (Tap) hagnaður fyrir skatta     1.684 (14.793)   (13.109)    (19.666)
Tekjuskattur
..............................               129    2.365      2.494       3.260
            (Tap) hagnaður tímabilsins     1.812 (12.427)   (10.615)    (16.406)

Skipting (taps) hagnaðar
Eigendur móðurfyrirtækisins ........       1.806 (12.415)   (10.610)    (16.382)
Hlutdeild minnihluta
....................                           7     (12)        (5)        (24)
            (Tap) hagnaður tímabilsins     1.812 (12.427)   (10.615)    (16.406)

Handbært fé frá rekstri                      425    2.451      2.876       3.127



Efnahagsreikningur                     31.3.2009           30.6.2009  31.12.2008

Fastafjármunir
...........................              242.946             250.993     252.618
Veltufjármunir
............................              19.613              13.444       6.755
                                Eignir   262.559             264.438     259.373

               Eigið fé
......................................    49.971              37.344      48.359
Langtímaskuldir og skuldbindingar        194.810             207.176     196.589
Skammtímaskuldir .....................    17.778              19.918      14.425
                   Eigið fé og skuldir   262.559             264.438     259.373

Kennitölur
   Veltufjárhlutfall                        1,10                0,67        0,47
   Eiginfjárhlutfall                       19,0%               14,1%       18,6%

OR Q2 2009.pdf