|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2023-06-05 11:29:51 CEST 2023-06-05 11:29:51 CEST REGULATED INFORMATION Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félagsSjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 22 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 545.482 eigin hluti að kaupverði 18.682.658 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 17.05.2023. Sjóvá átti 8.280.121 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 8.825.603 eigin hluti eða sem nemur 0,75% af útgefnum hlutum í félaginu. Sjóvá hefur keypt samtals 1.641.695 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,14% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 56.297.118 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.331.378 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,23% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. september 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Nánari upplýsingar veitir: Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|