2015-05-06 18:19:28 CEST

2015-05-06 18:20:21 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : MP banki annast viðskiptavakt með sértryggð skuldabréf ISLA CBI 26


Íslandsbanki  hf.  hefur  samið  við  MP  banka  um  að  hinn síðarnefndi annist
viðskiptavakt  með ISLA  CBI 26, útgefnum  sértryggðum skuldabréfum  (e. Covered
Bonds)  Íslandsbanka. Í því  felst að setja  fram daglega kaup-  og sölutilboð í
bréfin, áður en markaður er opnaður, að lágmarki 20 m.kr. að nafnverði. MP banki
mun  endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að tilboði hefur verið tekið.
Tilboðin  gilda aðeins innan dags og hámarksmunur kaup- og sölutilboða ákvarðast
af  verði gildra tilboða og má vera 1,15%. Eigi viðskiptavakt MP banka viðskipti
á  einum degi fyrir 60 m.kr. að nafnvirði er honum heimilt að hætta framsetningu
tilboða fram á næsta viðskiptadag.

Viðskiptavaktin gildir frá og með fimmtudeginum 7. maí 2015.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma
    440 4752/ 844 4752.
  * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í
    síma 844 3678.


[HUG#1919507]