2016-04-01 17:37:02 CEST

2016-04-01 17:37:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

REITIR: Yfirtaka fasteignafélaga í rekstri Stefnis hefur farið fram


Með vísan til fyrri tilkynninga um kaup Reita á fasteignafélögum í rekstri
Stefnis hf. tilkynnist hér með að yfirtaka umræddra félaga hefur farið fram í
dag. Um er að ræða fasteignir sem telja samtals um 34.000 fermetra og eru þær
Hótel Borg, Borgartún 37, Guðrúnartún 10, Laugavegur 77, Fiskislóð 11,
Skúlagata 17, Síðumúli 16-18 og Faxafen 5. Fyrirhuguð kaup á Þingvallastræti 23
á Akureyri gengu ekki eftir þar sem forkaupsréttur að eigninni var nýttur af
forkaupsréttarhafa. 

Heildarvirði kaupanna er því samtals um 16.220 m.kr. Leigutekjur á ársgrunni
nema um 1.215 m.kr. og leiða kaupin til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI)
Reita hækkar um 1.000 m.kr. á ársgrundvelli. 

Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 660 3320 eða Einar
Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669-4416.