2015-10-30 20:54:56 CET

2015-10-30 20:55:57 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Ríkisútvarpið ohf. - Fyrirtækjafréttir

Leiðrétting vegna rangfærslna í skýrslu og fréttum um hana


Í skýrslu sem nefnd undir forystu Eyþórs Arnalds ritaði og í nokkrum fréttum
sem birtar hafa verið um hana er rangt farið með staðreyndir um fjármál
Ríkisútvarpsins ohf. Fullyrt er að Ríkisútvarpið geri kröfu um skilyrt
viðbótarframlag til næstu fimm ára og í áætlunum félagsins sé gert ráð fyrir
verulega hækkuðu ríkisframlagi, þ. á m. að 3,2 milljörðum króna verði varið til
að létta skuldum af Ríkisútvarpinu. Þetta er ekki rétt. Ríkisútvarpið hafði
vakið athygli nefndarinnar á að fullyrðingar þeirra í skýrsludrögum væru rangar
og jafnframt að þeim væri óheimilt með tilliti til laga um verðbréfaviðskipti
nr. 108/2007 að birta upplýsingar sem vörðuðu rekstraráætlanir félagsins, þar
með talið ósamþykktar sviðsmyndir, enda höfðu nefndarmenn ritað undir
trúnaðaryfirlýsingu þess efnis. 

Hið rétta er að stjórn Ríkisútvarpsins hefur samþykkt rekstraráætlun fyrir
tímabilið 1. september 2015 til 31. ágúst 2016. Þessi áætlun gerir ráð fyrir að
útvarpsgjaldið lækki ekki frekar heldur haldist það óbreytt eins og mennta- og
menningarmálaráðherra hefur boðað. Sú áætlun verður uppfærð og lögð fyrir
stjórn fyrir árslok og mun þá taka til almanaksársins 2016. Einnig liggja fyrir
áætlanir sem gera ráð fyrir viðbrögðum félagsins ef forsendur um óbreytt
útvarpsgjald ganga ekki eftir í meðförum þingsins. Þær áætlanir fela í sér
umtalsverða skerðingu á þjónustu og dagskrá Ríkisútvarpsins. Í öllum áætlunum
stjórnenda Ríkisútvarpsins er gert ráð fyrir hallalausum og sjálfbærum rekstri
á næsta rekstrarári, eins og raunin hefur verið á síðastliðnum tólf mánuðum.