|
|||
2014-03-24 17:40:21 CET 2014-03-24 17:41:22 CET REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - FyrirtækjafréttirLánasjóður sveitarfélaga ohf. – Undirritun AðalmiðlarasamningaÍ dag, 24. mars 2014, var skrifað undir samninga milli Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. og aðalmiðlara í tengslum við útgáfu skuldabréfa lánasjóðsins og viðskiptavakt á eftirmarkaði í flokkum LSS150224 og LSS150434. Markmiðið með samningnum er að styrkja aðgang lánasjóðsins að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. Frá 26. mars 2014 hafa fjórar fjármálastofnanir heimild til að kalla sig:"Aðalmiðlara með skuldabréf lánasjóðsins". Þær eru: Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf., MP banki hf. og Straumur fjárfestingabanki. Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson Sími: 515 4947 e-mail: egill@lanasjodur.is |
|||
|