2016-06-09 14:32:48 CEST

2016-06-09 14:32:48 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Fyrirtækjafréttir

Sjóvá - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. sem haldinn var 11. mars 2016 veitti
stjórn félagsins heimild til að kaupa allt að 156.243.676 eigin hluti í
félaginu, en það jafngildir um 10% af útgefnu hlutafé félagsins. Heimildina
skal einungis nýta í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða
til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup á eigin bréfum. 

Sami aðalfundur veitti stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. einnig heimild til
þess að kaupa hluti í félaginu með framkvæmd endurkaupaáætlunar að hámarki
156.243.676 hlutir, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en
2.000 milljónir króna. Heimildin gildir fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó
aldrei lengur en til 11. mars 2017. 

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindra samþykkta
tekið ákvörðun um kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun í þeim tilgangi
að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupin munu að hámarki nema 25.000.000
hluta eða 1,6% af útefnum hlutum í félaginu, en þó þannig að heildarkaupverð
verði ekki hærra en 300 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 30. september
2016 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu. 

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd
endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á
hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr.
2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr.
630/2005. 

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup
hvers dags munu að hámarki nema 605.522 hlutum eða sem nemur 25% af meðaltali
daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Kauphallar Íslands hf.
í maí 2016. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur
verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim
viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra. 

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða
tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara
fram. 

Nánari upplýsingar veitir Hermann Björnsson, forstjóri. s. 440-2000