2018-10-16 19:18:58 CEST

2018-10-16 19:18:59 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki lýkur víxlaútboði


Arion banki hf. lauk í dag, þriðjudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða.  Í heild bárust 14 tilboð upp á 2.860 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.860 milljónir kr.

Í heild bárust 3 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 280 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,49% - 4,80%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 80 milljónir á 4,49% flötum vöxtum.

Í heild bárust 11 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 2.580 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,55% - 4,80%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 1.780 milljónir á 4,60% flötum vöxtum.

Engin tilboð bárust í 12 mánaða víxilinn.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20. október næstkomandi. 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.