|
|||
![]() |
|||
2015-06-04 15:12:46 CEST 2015-06-04 15:13:47 CEST REGLERAD INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirAðalmiðlarasamningar og viðskiptavakt vegna skuldabréfaflokka RVK 53 1 og RVK 19 1Reykjavíkurborg endurnýjar samninga við Arion banka, Íslandsbanka, Landsbanka, MP banka, og Straum fjárfestingarbanka um viðskiptavakt með skuldabréf Þann 4. júní 2015 samþykkti borgarráð endurnýjaða samninga um viðskiptavakt á skuldabréfaflokkum Reykjavíkurborgar með auðkennið RVK 53 1 og RVK 19 1 sem, skráðir eru í Kauphöll. Markmiðið með samningunum er að styrkja aðgang Reykjavíkurborgar að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. Frá og með 25. maí 2015 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig: „Aðalmiðlara með skuldabréf Reykjavíkurborgar“. Þær eru: Arion banki hf., Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf., MP banki hf., og Straumur fjárfestingarbanki hf. Helstu atriði samningsins eru: -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum Reykjavikurborgar. -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til að leggja fram tilboð að lágmarki 100 m.kr. að nafnverði samanlagt í þá flokka sem í boði eru í hverju útboði, að hámarki þó einu sinni í hverjum mánuði. -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem Reykjavíkurborg veitir. -- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir RVK 53 1 og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 50 m.kr. að nafnvirði í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar. -- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir RVK 19 1 og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 20 m.kr. að nafnvirði í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar. -- Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal aldrei vera meiri en 1%. -- Viðskiptavaki skal endurnýja tilboð innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið. -- Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 150 m.kr. að nafnvirði með RVK 53 1 er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða. -- Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 60 m.kr. að nafnvirði með RVK 19 1 er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða. Viðskiptavakt Arion banka hf., Íslandsbanka hf., Landsbanka hf., MP banka hf., Straums fjárfestingarbanka hf. gildir frá og með 25. maí 2015 til 24.maí 2016. Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 411-1111 |
|||
|