2012-05-10 12:33:36 CEST

2012-05-10 12:34:38 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Ársreikningur

Hagar ársuppgjör 2011/12


Ársreikningur Haga fyrir rekstrarárið 2011-2012 var samþykktur af stjórn og
forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 10. maí 2012.  Reikningurinn nær yfir
tímabilið 1. mars 2011 - 29. febrúar 2012. Árs­reikningurinn hefur að geyma
samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við
alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS).  Endurskoðendur félagsins, KPMG ehf.,
hafa endurskoðað reikninginn og hafa áritað hann fyrirvaralausri áritun. 



Helstu upplýsingar:

  -- Hagnaður tímabilsins nam 2.344 millj. kr. eða 3,4% af veltu.
  -- Vörusala tímabilsins nam 68.495 millj. kr.
  -- Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 4.183
     millj. kr.
  -- Heildareignir samstæðunnar námu 23.405 millj. kr. í lok tímabilsins.
  -- Handbært fé félagsins nam 2.149 millj. kr. í lok tímabilsins.
  -- Eigið fé félagsins nam 6.221 millj. kr. í lok tímabilsins.
  -- Eiginfjárhlutfall félagsins var 26,6% í lok tímabilsins.

Vörusala félagsins nam 68.495 milljónum króna, samanborið við 66.700 milljónir
króna fyrir sama tímabil árið áður. Á síðasta rekstrarári var verslanakeðjan
10-11 hluti af samstæðunni á fyrstu sex mánuðunum. Að teknu tilliti til
brotthvarfs á rekstri 10-11 nemur söluaukning félagsins 5,3% milli ára. 



Afkoma félagsins fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta nam 4.183 milljónum
króna, samanborið við 4.384 milljónir króna árið áður, en 10-11 var hluti af
rekstri félagsins til loka ágúst 2010. Framlegð félagsins hefur dregist saman á
milli ára, m.a. vegna brotthvarfs 10-11 en aðallega vegna hækkandi
kostnaðarverðs og veikingar krónunnar. 



Veruleg breyting er á fjármagnsliðum félagsins milli ára, sem skýrist bæði af
einskiptisliðum og af hagstæðari lánakjörum. Fjármagnskostnaður tímabilsins var
54 milljónir króna samanborið við 1.704 milljónir á sama tíma í fyrra. Mestu
munar um 515 milljón króna endurgreiðslu Arion banka vegna endurútreiknings
bankans á gengistryggðum lánum félagsins sem greidd voru upp árið 2009. 



Hagnaður rekstrarársins fyrir skatta nam 3.052 milljónum króna, samanborið við
1.457 milljónir króna árið áður.  Hagnaður eftir skatta nam 2.344 milljónum
króna á tímabilinu, sem jafngildir um 3,4% af veltu. 



Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 23.405 milljónum króna.
Fastafjármunir voru 12.604 milljónir og veltufjármunir 10.801 milljónir.
Birgðir hafa aukist milli ára, eða um 10,3%, en það má m.a. rekja til
verðhækkana þar sem hvert stykki er nú dýrara en áður. 



Eigið fé félagsins var 6.221 milljónir króna í lok tímabilsins og
eiginfjárhlutfall 26,6%. Eiginfjárhlutfall á sama tíma í fyrra var 16,6%.
Heildarskuldir samstæðunnar voru 17.184 milljónir króna, þar af eru
langtímaskuldir 10.468 milljónir króna. Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins í
lok tímabilsins eru 8.423 milljónir króna eða 2,0 x EBITDA. Innra virði
hlutafjár í lok febrúar er 5,31 samanborið við 3,08 í lok síðasta rekstrarárs í
febrúar 2011. 



Handbært fé frá rekstri í lok tímabilsins var 3.427 milljónir króna samanborið
við 1.475 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Handbært fé í lok tímabilsins
var 2.149 milljónir króna samanborið við 1.088 milljónir árið áður. 



Framtíðarhorfur:

Horfur í rekstri Haga eru nokkuð góðar en rekstur félagsins var skv. áætlunum á
nýliðnu ári. Áætlun ársins 2012/13 er sambærileg niðurstöðu nýliðins
rekstrarárs en almenn óvissa ríkir enn á Íslandi og þar sem ráðstöfunartekjur
íslenskra heimila hafa mikil áhrif á rekstur félagsins telja stjórnendur þess
að vöxtur verði ekki mikill á rekstrarárinu sem nýlega er hafið. 



Kynningarfundur:

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Hilton
Reykjavík Nordica, föstudaginn 11. maí kl. 10:30, en þar mun Finnur Árnason
forstjóri kynna afkomu félagsins. Vinsamlegst tilkynnið mætingu með tölvupósti
á hagar@hagar.is. 



Fjárhagsdagatal 2012/13:

Aðalfundur 8. júní 2012

  1. ársfjórðungur (1. mars - 31. maí): 29. júní 2012
  2. ársfjórðungur (1. mars - 31. ágúst): 26. október 2012
  3. ársfjórðungur (1. mars - 30. nóv): 18. janúar 2013
  4. ársfjórðungur (1. mars - 28. feb): 17. maí 2013



Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins, í síma 530-5500.