2009-06-24 16:26:20 CEST

2009-06-24 16:27:20 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsvaki - Fyrirtækjafréttir

- Samkomulag um sölu hlutdeildarskírteina og yfirtöku eigna Landsbanki Private Equity I undirritað


15. júní 2009 voru eftirfarandi samningar undirritaðir:

1. Samkomulag um yfirtöku hlutdeildarskírteina (“Unit Share Acquisition
   Agreement”) milli Landsvaka hf. (kt. 700594-2549), Hafnarstræti 5, 155
   Reykjavík og meðal annarra The Aurora Fund LP (skráningarnúmer SL007100),
   skoskt hlutafélag með aðalstarfsstöð sína að 80 George Street, Edinburgh EH2
   3BU, Bretlandi („kaupandinn”). Í kjölfarið samþykkti kaupandinn m.a. að
   yfirtaka, á verðinu 1 ISK, öll hlutdeildarskírteini Landsvaka hf. í
   Landsbanki Private Equity Fund 1 (kt. 680405-9720), fagfjárfestasjóði sbr.
   4. gr. laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði,
   Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík, (hér eftir „sjóðurinn”); og 

2. Samkomulag milli sjóðsins og kaupandans meðal annarra, um yfirtöku eigna
   (“Asset Acquisition Agreement”), sem felur m.a. í sér að kaupandinn samþykkir
   að yfirtaka allar undirliggjandi fjárfestingar og Evrureikning sjóðsins. 

Ákvæðum samkomulagsins um yfirtöku hlutdeildarskírteina (“Unit Share
Acquisition Agreement”) verður því aðeins fullnægt að þau skilyrði sem þar koma
fram verði uppfyllt, eða að kaupandinn falli frá skilyrðum þessum í síðasta
lagi á því tímamarki sem tilgreint er í samkomulaginu. 

Ákvæðum samkomulags um yfirtöku eigna (“Asset Acquisition Agreement”) verður
því aðeins fullnægt að ákvæðum samkomulags um yfirtöku hlutdeildarskírteina,
sbr. hér að framan, hafi þá þegar verið fullnægt. 

Umsamið kaupverð í samkomulaginu um yfirtöku eigna (“Asset Acquisition
Agreement”) er háð ákvæðum þess og því að kaupandinn geri ekki kröfu vegna
endurkaupa útistandandi skuldabréfaflokka, þ.e. LPE 1 C skuldabréfa (ISIN
number IS0000012938) og LPE 1 D skuldabréfa (ISIN Number IS0000012920), sem
útgefin eru af sjóðnum. 


Nánari upplýsingar veita:

Fabio C. Quaradeghini
Sjóðsstjóri
Landsvaki hf.
Hafnarstræti 5
155 Reykjavík
Sími: (+354) 410 7178
Farsími: (+354) 821 2021
Fax: (+354) 410 3004
Tölvupóstur: Fabio.Quaradeghini@landsvaki.is 


Hlynur Hreinsson
Fagfjárfesta tengsl
Verðbréfamiðlun  - fagfjárfestar
NBI hf. 
Hafnarstræti 5
155 Reykjavík
Sími: (+354)  410 7156
Farsími: (+354)  860 5530
Fax: (+354)  410 3006
Tölvupóstur: hlynurh@landsbankinn.is