2020-12-03 16:44:07 CET

2020-12-03 16:44:21 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Heimavellir hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Heimavellir hf.: Tilkynning vegna kröfuhafafunda skuldabréfaeigenda HEIMA071225, HEIMA071248 og HEIMA100646 sem átti að halda þann 7. desember 2020


LEX, sem umboðsmaður kröfuhafa í skuldabréfaflokkunum HEIMA071248, HEIMA071225 HEIMA100646 hefur boðað fund með eigendum skuldabréfa þann 7. desember 2020 í samræmi við umboðssamning, dags. 12. desember 2018, þar sem á dagskrá eru m.a. tillögur útgefanda, Heimavalla hf., um tilteknar breytingar á skilmálum skuldabréfanna. Heimavellir hf. hafa óskað eftir því að bæta tillögu við þær tillögur sem lagðar voru fram þann 23. nóvember 2020 sbr. viðaukar við þessa tilkynningu.

Í ljósi þessa og til að gefa skuldabréfaeigendum færi á að mynda sér upplýsta skoðun á kostum framkominnar tillögu, hefur verið ákveðið að fresta fundunum sem búið var að boða til þannig að nýir fundartímar eru eftirfarandi:

Fundur vegna HEIMA071225 verður haldinn þann 11. desember 2020 kl:09:00

Fundur vegna HEIMA071248 verður haldinn þann 11. desember 2020 kl:10:00

Fundur vegna HEIMA100646 verður haldinn þann 11. desember 2020 kl:11:00

Ítrekað er að ákvarðanir sem teknar eru með tilskyldum atkvæðafjölda á ályktanabærum kröfuhafafundi binda alla kröfuhafa. Í ljósi sóttvarnarreglna verður fundurinn haldinn í gegnum Microsoft Teams samskiptaforritið og eru kröfuhafar beðnir um að tilkynna um fundarsókn sína til veðgæsluaðila í póstfangið gudmundur@lex.is sem mun í kjölfarið senda rafrænt fundarboð ásamt fundargögnum.

Nánari upplýsingar veitir: Erlendur Kristjánsson, fjárfestatengill/regluvörður, erlendur@heimavellir.is, s. 5173440

Viðhengi