|
|||
![]() |
|||
2012-08-28 17:53:18 CEST 2012-08-28 17:54:20 CEST REGULATED INFORMATION RARIK ohf. - ÁrsreikningurRARIK ohf árshlutareikningurÁrshlutareikningur RARIK fyrstu sex mánuði ársins 2012 Árshlutareikningur RARIK ohf 1. janúar til 30. júní 2012 var samþykktur af stjórn þann 28. ágúst. Rekstarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta ársins 2012 var 1.375 milljónir króna. Rekstrarafkoman var betri en á fyrri hluta ársins 2011 og hækkuðu rekstrartekjur um 11,8% frá fyrra ári, en rekstrargjöld með afskriftum um 2,9% og var regluleg starfsemi fyrirtækisins í samræmi við áætlanir. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 699 milljón króna á tímabilinu en voru á sama tímabili árið áður neikvæðir um 981 milljónir króna. Þessi breyting stafar m.a. af styrkingu krónunnar, en verðbólga var þó hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Áhrif hlutdeildarfélags á rekstur voru jákvæð um 53 milljónir króna. Samkvæmt yfirliti um heildarafkomu var hagnaður á tímabilinu 566 milljónir króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 1.995 milljónir króna eða um 36% af veltu tímabilsins, samanborið við 1.532 milljónir eða 31% af veltu á sama tímabili árið áður. Hreint veltufé frá rekstri var 1.975 milljónir króna samanborið við 1.531 milljón króna á sama tímabili árið 2011. Samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2012 voru heildareignir RARIK 37.163 milljónir króna og heildarskuldir námu 17.269 milljónum króna. Eigið fé var 19.894 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 53,5%. Árshlutareikningur RARIK ohf er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Horfur Horfur í rekstri RARIK á árinu 2012 eru góðar. Gert er ráð fyrir að afkoma ársins fyrir fjármagnsliði verði í samræmi við áætlanir, en heildarafkoma ársins ræðst hins vegar að verulegu leyti af þróun á gengi krónunnar og almennu ástandi efnahagsmála. Miðað við gengisþróun undanfarna mánuði og verðbólguspár næstu mánaða má búast við að heildarafkoma fyrirtækisins verði jákvæð á árinu. Helstu stærðir samstæðureiknings eru sýndar í meðfylgjandi viðhengi |
|||
|