2023-01-27 15:50:00 CET

2023-01-27 15:50:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Origo - Fjárhagsdagatal

Origo hf. - Ársuppgjör 2022 birt 2. febrúar, afkomufundur 3. febrúar


Origo hf. mun birta uppgjör 4. ársfjórðungs og ársins 2022 eftir lokun markaða fimmtudaginn 2. febrúar. Origo býður fjárfestum og markaðsaðilum til fjárfestafundar föstudaginn 3. febrúar.

Á fundinum munu Jón Björnsson forstjóri og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs kynna rekstur og afkomu fjórða ársfjórðungs og ársins 2022. Í kjölfarið á kynningunni verður opnað fyrir spurningar.

Kynningin hefst kl. 08:30 og verður haldin í húsnæði Origo að Borgartúni 37, 105 Reykjavík. Einnig er hægt að fylgjast með fundinum í gegnum netstreymi. 

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast hér: https://www.origo.is/um-origo/fjarfestar

Skráning á fundinn fer fram hér: https://www.origo.is/fjarfestar/fjarfestakynning

Nánari upplýsingar
Gunnar Petersen, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 825-9001 eða gp@origo.is