2015-03-24 17:16:59 CET

2015-03-24 17:18:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Ársreikningur

Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Ársreikningur 2014


Rekstur og afkoma ársins 2014

Hagnaður ársins nam 247 milljónum króna samanborið við 715 milljónir króna árið
2013. Afkoma ársins fyrir óreglulega liði nam 711 milljónum króna samanborið
við 815 milljónir króna árið 2013. Mismunur á milli ára skýrist af gjaldfærslu
á árinu vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Lánasjóðurinn var dæmdur til
að endurgreiða Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins vegna gengisláns. Ef ekki væri
fyrir þá gjaldfærslu væri afkoma ársins í samræmi við undanfarin ár. 

Heildareignir sjóðsins í lok ársins voru 76.782 milljónir króna á móti 77.095
milljónum króna í árslok 2013. Heildarútlán sjóðsins námu 71.347 milljónum
króna í lok árs samanborið við 69.316 í árslok 2013. Þá nam eigið fé 15.666
milljónum króna á móti 15.777 milljónum króna í árslok 2013 og hefur lækkað um
0,7% á árinu.  Vegið eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er
68% en var 67% í árslok 2013. 

Framtíðarhorfur

Lánasjóðurinn mun starfa í meginatriðum líkt og undanfarin ár þar sem unnið
hefur verið að eflingu á starfsemi hans og aukinni þjónustu við sveitarfélögin
með því að nýta gott lánstraust sjóðsins til að útvega sveitarfélögunum lánsfé
á hagstæðum kjörum. Væntingar stjórnenda standa til að afkoma af hefðbundinni
starfsemi verði í samræmi við það sem verið hefur undanfarin ár. 

Kynningarfundur

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 25. mars
2015 í starfsstöð sjóðsins, Borgartúni 30, 5 hæð. Óttar Guðjónsson
framkvæmdastjóri mun kynna afkomu og efnahag sjóðsins ásamt því að svara
spurningum. Kynningin hefst kl. 16:00. 

Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949.