2016-12-16 11:38:21 CET

2016-12-16 11:38:21 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

REITIR: Skeifan 11 seld


Reitir hafa í dag undirritað kaupsamning um sölu á öllum eignarhlutum félagsins
í Skeifunni 11 í Reykjavík, samtals um 1.691 fm., til Fannar-þvottaþjónustunnar
ehf. Söluverð fasteignanna er 565 milljónir kr. og greiðist með reiðufé. Salan
mun ekki hafa áhrif á áætlaðan rekstrarhagnað Reita þar sem eignirnar hafa ekki
verið í útleigu síðan í júlí 2014, en þær skemmdust þá í bruna. Engir
fyrirvarar eru gerðir í kaupsamningi og mun afhending eignanna fara fram um
miðjan janúar á næsta ári. 

Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 660 3320 og Einar
Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416.