2009-01-21 10:38:58 CET

2009-01-21 10:39:58 CET


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisbréfa RIKB 10 1210, RIKB 13 0517 & RIKB 19 0226


Föstudaginn 23. janúar klukkan 14:00 fer fram útboð í þremur flokkum ríkisbréfa
með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. 

Heildarfjárhæð þessa útboðs verður allt að 10.000 milljónum króna að nafnverði
í RIKB 10 1210 og allt að 10.000 milljónum króna samtals að nafnverði í RIKB 13
0517 og RIKB 19 0226. 

Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem
berast, hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er
heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðið verður með hollensku sölufyrirkomulagi sem þýðir að öll samþykkt tilboð
bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 
Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 28. janúar 2009.

Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í
eftirfarandi flokka ríkisverðbréfa: 

Flokkur	         
RIKB 10 1210	
RIKB 13 0517	
RIKB 19 0226	
*að nafnverði

Lokagjalddagi
10.12.2010
17.5.2013	 
26.2.2019	

Útistandandi fjárhæð
12.514 m.kr.
30.000 m.kr.
37.783 m.kr.

Lánstími
1,9 ár
4,3 ár
10  ár

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir mun Seðlabankinn f.h.
ríkissjóðs bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00
þriðjudaginn 27. janúar.  Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu
útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur
fyrir þessi viðskipti er 28. janúar 2009. 

Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða-
og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633.