2013-10-30 13:42:50 CET

2013-10-30 13:43:51 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Fyrirtækjafréttir

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkum LSS150224 og
LSS150434 þann 29. október 2013. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 1.
nóvember 2013. 

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu
skuldabréfa lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10%
af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til
kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á
samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það
magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. 

Alls bárust tilboð í LSS150224 að nafnvirði ISK 387.000.000 á bilinu 2,35% -
2,46%.  Ákveðið var að afþakka öll tilboð í LSS150224 að þessu sinni. 

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.195.000.000 á bilinu 2,76% -
3,00 %.  Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 845.000.000 á
ávöxtunarkröfunni 2,80%.   Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í
LSS150434 fyrir ISK 31.500.000. Heildarmagn seldra bréfa í flokki LSS150434
nemur því að nafnvirði ISK 876.500.000 á ávöxtunarkröfunni 2,80%. Útistandandi
fyrir voru ISK 12.127.852.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 13.004.352.565. 

Nánari upplýsingar veitir:
Egill Skúli Þórólfsson
Sími: 515 4947
e-mail: egill@lanasjodur.is