2008-06-24 11:15:43 CEST

2008-06-24 11:16:43 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

- Icelandair grípur til aðgerða til að treysta afkomu félagsins


Icelandair grípur til aðgerða til að treysta afkomu félagsins í ljósi
eldsneytisverðhækkana og óvissu í efnahagsmálum 


•  Ferðum fækkað næsta vetur um 14%
•  Stöðugildum fækkað úr 1230 í 1040 eða um 190 
•  Skipulagsbreytingar og fækkun stjórnenda
•  Sparnaðaraðgerðir í flugi 

Icelandair kynnir í dag aðgerðir til þess að bregðast við breyttu
rekstrarumhverfi vegna hækkandi eldsneytisverðs og óvissu í efnahagsmálum.
Aðgerðirnar fela í sér samdrátt í vetraráætlun fyrirtækisins, fækkun
starfsfólks, skipulagsbreytingar, fækkun í stjórnendahópi og eldsneytissparandi
aðgerðir í flugi. 

Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, segir ótryggt efnahagsástand
í heiminum og gríðarlegar hækkanir á flugvélaeldsneyti að undanförnu breyti
rekstrarforsendum Icelandair. "Þessar erfiðu ytri aðstæður hafa áhrif á
starfsemi Icelandair og því grípum við strax til aðgerða til að styrkja
fyrirtækið og treysta afkomu þess. Við gerum ráð fyrir að eftirspurn muni
minnka þegar líður á árið og því munum við fækka ferðum í áætlunarflugi næsta
vetur. Samdráttur í flugi leiðir óhjákvæmilega af sér fækkun starfsmanna. Við
kappkostum að halda slíkum samdrætti í lágmarki og vinnum ötullega að því að
verja tekjuöflun fyrirtækisins til þess að tryggja vöxt þess til framtíðar",
segir hann. 

Dregið úr áætlun

Icelandair tilkynnti í lok maí s.l. um breytingar á áætlun næsta vetrar sem
fela meðal annars í sér að vetrarhlé verður lengt í flugi til og frá
Minneapolis og heilsársflugi til Toronto og Berlín er frestað. Flug til og frá
Toronto í Kanada hófst í vor og mun halda áfram vorið 2009 eftir vetrarhlé. Hlé
var gert á flugi til Minneapolis á síðasta vetri og nú verður það hlé lengt
veturinn 2008-2009 og stendur frá októberlokum fram í mars. Á síðasta vetri var
ekki flogið til Berlínar og áformum um heilsársflug þangað hefur verið frestað.
Fleiri breytingar hafa verið gerðar á vetraráætlun félagsins, meðal annars
verður dregið úr flugi til Parísar en flug aukið til New York. Einnig verða
felld út einstök flug á nokkrum leiðum. Þessar breytingar nema um 14% samdrætti
milli vetraráætlana. 

Fækkun starfsmanna

Við þessar breytingar er ljóst að starfsmannaþörf félagsins minnkar og því er
gert ráð fyrir að stöðugildi hjá Icelandair muni fækka um 190, úr um 1230 á
síðasta vetri í 1040 í vetur. Vegna þess að sumir eru í hlutastörfum mun
starfsfólki í heild fækka um 240 einstaklinga. Þar af fá rúmlega 200
uppsagnarbréf fyrir lok júnímánaðar, 64 flugmenn og 138 flugfreyjur, en einnig
fækkar starfsmönnum á tæknisviði, flugumsjónarmönnum og starfsmönnum á
söluskrifstofum félagsins, að hluta með uppsögnum og að hluta með því að ekki
er ráðið í störf sem losna. Í heild mun fækka í starfsmannahópi Icelandair um
240 einstaklinga í haust, umfram þá breytingu sem jafnan fylgir því að mun
meiri umsvif eru í flugi á sumrin en veturna. Við uppsagnirnar er farið að
lögum um hópuppsagnir og haft samráð við viðkomandi stéttarfélög. Boðið er upp
á ráðgjöf og aðstoð fyrir þá sem missa atvinnuna. "Það er erfitt að sjá að baki góðum samstarfsmönnum og vinum og frábæru
starfsfólki. Icelandair hefur í harðri samkeppni byggt árangur sinn á þekkingu
og samheldni starfsfólksins. Fyrir vikið erum við í fremstu röð alþjóðlegra
flugfélaga og höfum mjög sterka stöðu hér á Íslandi. Þegar móti blæs í
rekstrinum reynir á þetta sem aldrei fyrr. Ég treysti því að þekking og reynsla
starfsmanna og sá samtakavilji sem hefur alla tíð verið undirstaða Icelandair
verði mesti styrkur þess nú. Ég óska því góða fólki sem fer frá okkur nú alls
hins besta", segir Birkir Hólm Guðnason. 

Skipulagsbreytingar og fækkun stjórnenda

Samhliða þessum samdrætti í flugáætlun og starfsmannafjölda Icelandair hafa
verið gerðar skipulagsbreytingar sem miða að því að einfalda ferla og draga úr
kostnaði. Lagðar hafa verið niður deildir og þær sameinaðar öðrum í
höfuðstöðvum hér á landi og á skrifstofum félagsins erlendis. Þá hefur
millistjórnendum verið fækkað og sem dæmi má nefna að forstöðumönnum innan
Icelandair hefur verið fækkað úr fimmtán í sjö. Þetta hefur verið gert með því
að ráða ekki í störf sem losna og með uppsögnum. Samhliða er einnig gert átak
til þess að draga úr öðrum rekstrarkostnaði.. 

Sparnaðaraðgerðir í flugi

Þá hefur verið hrint í framkvæmd margháttuðum aðgerðum til að ná fram
eldsneytissparnaði í flugi félagsins, til þess að draga úr áhrifum hækkandi
eldneytisverði. Átak er gert til þess að létta flugvélarnar eins og unnt er með
nákvæmari hleðslu, og sparnaði er náð fram með því að draga úr hraða og breyta
vinnuaðferðum við aðflug. "Í heild eru þetta aðgerðir sem við erum sannfærð um að styrkja Icelandair til
framtíðar", segir Birkir Hólm Guðnason. "Við höfum áður sýnt að með því að
bregðast hratt við ytri áföllum þá eflum við starfsemina þegar til lengri tíma
er litið. Sveigjanleiki er einn af lykilstyrkleikum fyrirtækisins og við munum
halda áfram að þróa og bæta fyrirtækið þannig að það geti áfram boðið upp á
góða og verðmæta þjónustu í flugi milli Íslands og annarra landa", segir Birkir
Hólm Guðnason. 

Ólík staða fyrirtækja innan Icelandair Group

Icelandair er eitt af tólf dótturfyrirtækjum Icelandair Group og eru öll
fyrirtækin að bregðast við breytingum í rekstrarumhverfi flug- og ferðaþjónustu
hvert með sínum hætti. „Fyrirtækin innan Icelandair Group eru að bregðast við
breytingum í umhverfi sínu á margvíslegan hátt. Önnur flugfélög innan
samstæðunnar, svo sem Flugfélag Íslands, Blubird Cargo, Latcharter í Lettlandi
og Tavel Service í Tékklandi, eru ólík og sum eru ekki háð þróun
eldsneytisverðs með sama hætti og Icelandair. En önnur fyrirtæki innan
Icelandair Group, eins og IGS á Keflavíkurflugvelli finna fyrir þessum
breytingum og þar fækkar fólki í haust umfram venjulega árstíðabreytingu um 75
stöðugildi. Öll fyrirtækin í Icelandair Group, sem samtals hafa um 3500
starfsmenn um allan heim, leggja áherslu á kostnaðaraðhald og sveigjanleika við
núverandi aðstæður“, segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.