|
|||
2011-08-25 13:24:57 CEST 2011-08-25 13:25:58 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - ÁrsreikningurÁrshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - júní 2011Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - júní 2011 var lagður fram í borgarráði í dag, 25. ágúst 2011. Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 996 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 1.522 mkr á tímabilinu. Niðurstaðan er því betri en gert var ráð fyrir, sem nemur 526 mkr. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 53 mkr en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 1.426 mkr, eða 1.373 mkr betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða Aðalsjóðs var neikvæð um 269 mkr en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að niðurstaðan yrði neikvæð um 3.174 mkr og var niðurstaðan því um 2.905 mkr betri en áætlað var. Helsta skýringin á betri afkomu felst í því að tekjur eru 1.613 mkr yfir áætlun og nettó fjármunatekjur eru 1.722 mkr yfir áætlun. Rekstrarútgjöld eru hins vegar 430 mkr yfir áætlun. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 3.841 mkr sem er 1.183 mkr betri niðurstaða en áætlað var. Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var neikvæð um 5.373 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 868 mkr. Viðsnúning m.v. áætlun er einkum að finna í fjármagnsliðnum sem var neikvæður um 13.395 mkr einkum vegna gengistaps. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 6.863 mkr sem er um 2.052 mkr betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. Grunnrekstur Reykjavíkurborgar er í góðu jafnvægi miðað við fjárhagsáætlun tímabilsins. Fjárhagslegur styrkur A-hluta borgarsjóðs er mikill hvort sem litið er til eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla eins og fram kemur í þessu uppgjöri. Nánari upplýsingar veitir Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar, í síma 693 9321. |
|||
|