|
|||
2011-08-25 15:25:14 CEST 2011-08-25 15:26:17 CEST REGULATED INFORMATION Landsvaki - ÁrsreikningurÁrshlutareikningur Landsvaka hf. fyrir fyrri helming ársins 2011Stjórn Landsvaka hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði Landsbankans, hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrri árshelming 2011. Þann 30. júní 2011 annaðist Landsvaki hf. rekstur 20 sjóða um sameiginlega fjárfestingu en á fyrri árshelmingi var einum sjóð slitið. Í lok tímabilsins nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsvaka 59,9 milljörðum króna samanborið við 53,4 milljarða í árslok 2010. Lykiltölur í þúsundum króna: Sjá viðhengi. • Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur árshlutareikning rekstrarfélagsins og B-hluta sem inniheldur árshlutareikning verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar voru af Fjármálaeftirlitinu. • Árshlutareikningurinn er með könnunaráritun frá KPMG sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á fyrri helmingi ársins 2011, efnahag þess 30. júní 2011 og breytingu á handbæru fé og hreinni eign sjóðanna á fyrri helmingi ársins 2011, í samræmi við lög og settar reikningsskilareglur. Laskaðir skuldabréfa- og hlutabréfamarkaðir setja enn mark sitt á starfsemi félagsins og enn vantar mikið upp á skilvirkni og dýpt á mörkuðum. Staða þeirra hefur því áhrif á rekstur sjóða Landsvaka auk þess sem erfið staða og óvissa í efnahagsmálum hefur áhrif á stöðu félagsins. Þróunin á fyrri hluta ársins 2011 var sjóðum Landsvaka tiltölulega hagstæð og jukust eignir í stýringu um 12%. Skuldabréfasjóðir stækkuðu þannig um 14% frá upphafi ársins og innlendir hlutabréfasjóðir stækkuðu um 143%. Útgreiðsla úr sjóðum í slitaferli var nokkur á tímabilinu og hefur það áhrif á heildarmyndina. Hagnaður var af rekstri félagsins á fyrri árshelmingi að fjárhæð 72 milljónir króna samkvæmt rekstrarreikningi félagsins. Eigið fé Landsvaka hf. í lok tímabilsins nam 382 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 133% en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8% samkvæmt lögum. Nánari upplýsingar um ársreikning Landsvaka hf. veitir Ari Skúlason, framkvæmdastjóri Landsvaka í síma 410 7406. |
|||
|