2016-04-19 13:23:53 CEST

2016-04-19 13:23:53 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

World Class kemur í Smáralind


World Class undirritaði í gær leigusamning við Reginn hf. um húsnæði á 2. hæð í
 Norðurturni  Smáralindar. Þar mun World Class opna glæsilega líkamsrækt og SPA
næsta haust. Heildarrými verður um 2.000 m2 en samningurinn er til 8 ára. 

Samningur þessi er enn eitt mikilvægt skref í endurskipulagningu Smáralindar og
umhverfi verslanamiðstöðvarinnar. Síðustu helgi kynnti Íslandsbanki að
höfuðstöðvar bankans yrðu fluttar í Norðurturnin við  Smáralind, við þá
ráðstöfun er Norðurturninn fullnýttur og orðinn að 800 manna vinnustað.  Það er
mat stjórnenda Regins hf. og  Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf. að þessi
tíðindi séu mjög jákvæð fyrir verslun og þjónustu í Smáralind og nágrenni og
styrki samkeppnisstöðu svæðisins. 

World Class og Reginn hf. hafa átt gott samstarf í gegnum tíðina en World Class
hefur skapað sér  fastan sess í Egilshöll þar sem mikil og jákvæð uppbygging
hefur átt sér stað síðustu árin. 



Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262