2014-06-30 14:30:11 CEST

2014-06-30 14:31:11 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Nýr sviðsstjóri hjá Reginn hf.


Þær breytingar hafa orðið innan Regins að Páll V. Bjarnason hefur tekið við sem
sviðsstjóri fasteignaumsýslu félagsins. Verksvið fasteignaumsýslu er yfirumsjón
með fasteignum félagsins, rekstri, viðhaldi og endurnýjun. Ennfremur að annast
móttöku eigna og koma þeim í leiguhæft ástand. Páll er 32 ára, með M.Sc. í
byggingaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík, bygginga-tæknifræðingur frá sama
skóla og húsasmíðameistari. Páll hefur starfað hjá Reginn síðan 2010. 

Kristinn Jóhannesson fráfarandi sviðsstjóri mun fara í sérstök verkefni innan
Regins, en þau helstu eru tengd „Uppfærslu og breytingum í Smáralind“ sem
framundan eru á árunum 2014 til 2016 sem og Umhverfis- og orkumál innan
samstæðunnar. 



Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 512 8900 / 899 6262