2009-03-23 10:32:11 CET

2009-03-23 10:33:11 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sparisjóður Bolungarvíkur - Fyrirtækjafréttir

Leiðrétting - Umsókn Sparisjóðs Bolungarvíkur um eiginfjárframlag úr ríkissjóði - Frétt birt 2009-03-20 17:18:53


Leiðrétting: Í fyrri tilkynningu slæddist með prentvilla þar sem talað var um
Sparisjóðinn í Keflavík í stað Sparisjóðs Bolungarvíkur. 


Stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur hefur óskað eftir  því við fjármálaráðherra að
nýtt verði heimild laga nr. 125/2008 og sparisjóðnum lagt til nýtt eigið fé sem
nemur 20% af bókfærðu eigin fé eins og það var í árslok 2007. 

Samkvæmt ársreikningi Sparisjóðs Bolungarvíkur nam eigið fé í árslok 2007 alls
kr. 2.006.167.000,-. Miðað við ákvæði áður nefndra laga og reglna er því
heimilt að leggja sparisjóðnum til fjárhæð sem nemur kr. 401.233.000,-. 

Sparisjóður Bolungarvíkur ráðgerir að birta ársuppgjör fyrir árið 2008 í viku
14.