|
|||
2009-02-11 17:23:22 CET 2009-02-11 17:24:22 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirAuglýsing um útboð ríkisvíxla RIKV 09 0515Mánudaginn 16. febrúar kl: 11:00 fer fram útboð á ríkisvíxlum með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. Heildarfjárhæð útboðsins verður allt að 10.000 milljónum króna að nafnverði. Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagur 18. febrúar 2009. Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokk ríkisvíxla: Flokkur RIKV 09 0515 Gjalddagi 15.5.2009 Lánstími 3 mánuðir Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi fimmtudaginn 19. febrúar 2009. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633. |
|||
|