2017-05-10 11:02:14 CEST

2017-05-10 11:02:14 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lýsing hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lýsing hf: Útboð á verðtryggðum skuldabréfum 11. maí 2017


Lýsing hf. efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 11. maí næstkomandi.
Boðin verða til sölu skuldabréf í nýjum skuldabréfaflokki LYSING 17 1.

LYSING 17 1 er nýr verðtryggður skuldabréfaflokkur með veði í útlánum og
fjármögnunarsamningum Lýsingar. Bréfið 7 ára jafngreiðslubréf og ber fasta
3,95% verðtryggða vexti.

Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu. Skuldabréfin eru
seld á pari. Skuldabréfin eru gefin út í 10 m.kr. einingum og verða skráð í
Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna þeim öllum.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50.
greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir
skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds flokks skuldaskjala eru
birt á vefsíðu félagsins, www.lysing.is/lysing/starfsemin/fjarfestatengsl/

Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s:840
4145
Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is,
s:896 6566
Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lýsingar hf., sighvatur@lysing.is, s:540
1700

[]