2011-11-03 16:34:26 CET

2011-11-03 16:35:33 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fljótsdalshérað - Fyrirtækjafréttir

Leiðrétting: Fjárhagsáætlun 2012 - 2015 - Frétt send út 2011-11-03 09:42:13


Leiðrétt niðurstaða fjármagnsliða í A og B hluta er (482.238) þús. kr í stað
(5) þús. kr. á árinu 2012. 

Leiðrétt niðurstaða fjármagnsliða í A og B hluta er (264.183) þús. kr. í stað
(3) þús. kr. á árinu 2015. 

Leiðrétt niðurstaða  eigin fjár 2012 er (212.251) þús. kr. í stað (-1)





Fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn
Fljótsdalshéraðs miðvikudaginn 2. nóv. 2011 og var henni vísað til seinni
umræðu sem verður þann 14. nóv. n.k..  Jafnframt er  lögð fram 3ja ára áætlun
fyrir árin 2013 - 2015. 

Helstu viðmið fjárhagsáætlunar Fljótsdalshéraðs eru:

  -- Jafnvægi skal vera á milli samanlagðra rekstartekna og -gjalda A- og
     B-hluta á hverju þriggja ára tímabili.
     -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 verður afgangur
        af rekstri bæði A- og B- hluta á árinu.
  -- Framlegð rekstrar (niðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði) skal vera
     á bilinu 15 - 20%.
     -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 verður
        framlegðarhlutfall A-hluta  21% og í samstæðu A og B hluta 25%.
  -- Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nemi ekki lægri fjárhæð en sem nemur
     afborgunum og vöxtum af langtímalánum.
     -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 mun veltufé frá
        rekstri nema 477 millj. kr. en afborganir af skuldbindingum verða um 415
        millj. kr. í samstæðu A og B hluta.  Í A hluta nemur veltufé frá rekstri
        um 345 millj. kr. en greiðslur vegna skuldbindinga nema um 328 millj.
        kr.
  -- Skuldir og skuldbindingar samstæðu (A- og B-hluta) fari ekki yfir 250% af
     skilgreindum tekjum.
     -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 verður
        skuldahlutfall A-hluta  217% og samstæðu A og B hluta um 252%.
     -- Árið 2015 verður skuldahlutfall A hluta um 199% og í samstæðu A og B
        hluta er áætlað að skuldahlutfallið nemi um 224%.



Inni í skuldbindingum sveitarfélagsins eru  kaup á fasteignum ríkisins vegna
málefna fatlaðra að fárhæð 122 millj. kr. sem væntanlega verður gengið frá á
árinu 2011 og síðan er í fjárhagsáætlun gert ráð fyrir að farið verði af stað
með byggingu á hjúkrunarheimili og verði á árunum 2012 og 2013 varið 1.000
millj. kr. til þess verkefnis.  Í báðum þessum verkefnum koma framlög á móti
frá ríkisvaldinu á næstu árum til að mæta stofnkostnaði. 

Bygging hjúkrunarheimilisins er löngu orðin tímabær og vonir standa til þess að
hægt verði að koma verkefninu í formlegan farveg fljótlega á næsta ári og búa
öldruðum þar með þá umgjörð sem þeim ber og efla í leiðinni atvinnustigið á
svæðinu og rekstur HSA. 

Skuldbindingar án HEF (veitustofnanir) nema 228% af heildartekjum  í árslok
2012 og verða komnar í 208% í árslok 2015. 



Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri