2014-06-25 17:17:44 CEST

2014-06-25 17:18:45 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning um undirritun Regins hf. á kaupsamningi á 100% hlut í Hótel Óðinsvé


Í tilkynningu Regins þann 11. apríl síðastliðinn kom fram að undirritað var
samkomulag við Gamma ehf. um kaup á félagi sem á fasteignirnar er hýsa Hótel
Óðinsvé. 

Undirritaður hefur verið kaupsamningur á milli dótturfélags Regins hf., þ.e.
Reginn Atvinnuhúsnæði ehf. og Gamma ehf. vegna kaupa á félaginu Hótel Óðinsvé
hf. Undirritun kaupsamnings er gerð í kjölfar niðurstöðu áreiðanleikakönnunar
sem nú er lokið. Stjórnir beggja félaga hafa samþykkt kaupin. 

Fasteignirnar í félaginu eru Þórsgata 1 og Lokastígur 2, 101 Reykjavík.
Fasteignirnar eru um 2.200 m2 og staðsettar í hjarta Reykjavíkur þar sem nálægð
er við þjónustu og menningarlíf borgarinnar. Hótel Óðinsvé er fjögurra stjörnu
með 50 herbergi, þar er einnig rekinn einn vinsælasti veitingastaðurinn í dag,
Snaps. Sömuleiðis er rekin smurbrauðsstofan Brauðbær sem hefur haft aðstöðu þar
í áratugi. Engin breyting verður  á rekstrinum við þessi eigandaskipti.
Samhliða var undirritaður nýr leigusamningur við sama rekstraraðila um
áframhaldandi rekstur í eigninni. 

Kaupin eru í samræmi við fjárfestingastefnu Regins hf. sem fela í sér markmið
að auka hlutdeild í húsnæði  tengdu ferðaiðnaðinum, stækkun með innri vexti og
fjárfestingu í arðbæru atvinnuhúsnæði með góða staðsetningu . Kaupverðið er
trúnaðarmál en áætlað er að EBITDA Regins hækki um rúmlega 2% miðað við útgefna
rekstrarspá fyrir 2014 og eignasafn Regins stækki um 1%. 



Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 512 8900 / 899 6262