2012-03-23 10:15:00 CET

2012-03-23 10:15:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga - Fyrirtækjafréttir

Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Samningar undirritaðir við aðalmiðlara


Í gær, 22. mars 2012, var skrifað undir samninga milli Lánasjóðs sveitarfélaga
ohf. og aðalmiðlara í tengslum við útgáfu skuldabréfa lánasjóðsins og
viðskiptavakt á eftirmarkaði í flokkum LSS150224 og LSS150434. Markmiðið með
samningnum er að styrkja aðgang lánasjóðsins að lánsfé og efla verðmyndun á
eftirmarkaði. 

Frá 26. mars 2012 hafa fjórar fjármálastofnanir heimild til að kalla sig:"Aðalmiðlara með skuldabréf lánasjóðsins". Þær eru: Arion Banki hf.,
Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf. og MP Banki hf. 

Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum lánasjóðs sveitarfélaga.

Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í útboðum
skuldabréfa lánasjóðsins að lágmarki 100 m.kr. að nafnverði samanlagt í þá
flokka sem í boði eru í hverju útboði, að hámarki þó einu sinni í hverjum
mánuði. 

Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem lánasjóðurinn
veitir. 

Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir LSS150224 og setur fram kaup-
og sölutilboð að lágmarki 50 m.kr. að nafnvirði í Nasdaq OMX á Íslandi fyrir
opnun markaðar. Tilboðsskylda aðalmiðlara í flokki LSS150224 verður lækkuð úr
50 m.kr. í 30 m.kr. þegar tilboðsskylda aðalmiðlara í flokki LSS150434 hefst. 

Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir LSS150434 og setur fram kaup-
og sölutilboð að nafnvirði 20 m.kr. að lágmarki í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir
opnun markaðar. Tilboðsskylda aðalmiðlara í flokki LSS150434 hefst þann dag sem
útgefið nafnvirði flokksins er orðið 10 milljarðar króna. 

Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans
fari ekki yfir 1% 

Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að þeim
hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir
samtals 200 m.kr. að nafnvirði með þá flokka lánasjóðsins sem viðskiptavakt er
með er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða. 

Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson, sími: +354 515 4947,
netfang: egill@lanasjodur.is