|
|||
2008-10-07 10:35:30 CEST 2008-10-07 10:35:56 CEST REGULATED INFORMATION Kaupþing banki hf. - FyrirtækjafréttirEngin afskipti Fjármálaeftirlitsins af KaupþingiÍ kjölfar róttækrar lagasetningar Ríkisstjórnar Íslands í gærkvöldi sem leyfir Fjármálaeftirlitinu (FME) að grípa inn í rekstur íslenskra fjármálafyrirtækja, vill Kaupþing koma eftirfarandi á framfæri: Fjármálaeftirlitið hefur ekki verið í sambandi við Kaupþing vegna mögulegra inngripa í starfsemi Kaupþings. Jafnframt staðfestir Kaupþing að Seðlabanki Íslands hafi veitt bankanum lán að fjárhæð 500 milljónir evra og að Kaupþing muni vinna með stjórnvöldum og gera allt sem í þess valdi er til að tryggja eðlilegt gangverk fjármálakerfisins á Íslandi. Nánari upplýsingar veitir Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, í síma 444 6112. |
|||
|