2012-11-02 17:20:39 CET

2012-11-02 17:21:43 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjanesbær - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2013


 Staðan styrkist

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2013 verður lögð fram í bæjarstjórn
nk. þriðjudag 6. nóvember. 

Áætlunin gerir ráð fyrir að rekstrarafgangur fyrir afskriftir og fjármagnsliði
verði um 635,9 m.kr. fyrir bæjarsjóð (A-hluta) og 2.774,1 m.kr. fyrir
samstæðu.(A+B hluta). 

Rekstrarafgangur bæjarsjóðs (A-hluta), að teknu tilliti til afskrifta og
fjármagnsliða, verður um 50,9 m.kr. 

Stærstu fyrirtæki og stofnanir sem falla undir B-hluta eru: Reykjaneshöfn,
Fasteignir Reykjanesbæjar ehf., og HS Veitur hf. Þrátt fyrir góðan
rekstrarhagnað fyrir fjármagnsliði er áfram gert ráð fyrir að mikill
fjármagnskostnaður falli á Reykjaneshöfn og félagslegar fasteignir bæjarins og
er því áætlað að halli samstæðu, að teknu tilliti til fjármagnsliða verði um
351,8 m.kr. 

Eiginfjárhlutfall bæjarsjóðs hækkar og verður 33,41% og fyrir samstæðu 23,99%.
Veltufjárhlutfall er 1,14 fyrir bæjarsjóð og í 1,70 fyrir samstæðu. 

Veltufé frá rekstri er áætlað um 1.025,5 m.kr. fyrir bæjarsjóð og um 2.303,8
m.kr. fyrir samstæðu. 

Handbært fé frá rekstri fyrir bæjarsjóð er áætlað 978,8 m.kr. og fyrir samstæðu
2.330,3 m.kr. 

Handbært fé bæjarsjóðs í árslok er áætlað 1.022,2 m.kr. og fyrir samstæðu
2.281,3 m.kr. 

Eignir á íbúa eru áætlaðar 2.102 þús.kr. fyrir bæjarsjóð og 3.291 þús.kr. fyrir
samstæðu. 

Skuldir á íbúa eru áætlaðar 1.400 þús.kr. fyrir bæjarsjóð og 2.501 þús.kr.
fyrir samstæðu. 

Útsvarsprósenta verður áfram 14,48%. Álagningarprósentur fasteignagjalda verða
áfram óbreyttar. 

Sá fyrirvari er gerður í fjárhagsáætlun að enn er ófrágengið uppgjör við
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf (EFF), sem er í eigu 10 sveitarfélaga og
fjármálastofnana. Áhrif væntanlegra breytinga á efnahagsreikning eru tekin inn
í fjárhagsáætlun. Ráðgert er að sveitarfélögin ljúki samningum við EFF og
bankastofnanir fyrir áramót. 

Fræðslu- og uppeldismál eru sem fyrr langstærsti málaflokkurinn en útgjöld til
fræðslumála nema 51% af heildarútgjöldum til allra málaflokka. Fjölskyldu- og
félagsþjónusta er með 14%, íþrótta- og tómstundamál nema 9%, umhverfis-,
umferðar- og skipulagsmál eru með 7%, menningarsvið er með 4% af
heildarútgjöldum og brunamál og almannavarnir taka til sín 2%. Sameiginlegur
kostnaður nemur 9% af heildarútgjöldum en undir þennan málaflokk falla nefndir
og ráð, rekstur bæjarskrifstofa, tölvu og upplýsingamál fyrir allar stofnanir
og aukaframlag í lífeyrissjóð. Inni í þessum málaflokki er einnig utanumhald um
framlög til Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. 

Meðfylgjandi er fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2013